Haustbúðir 15-18 okt. 2026

Price range: kr.105.000 through kr.150.000

Þessi helgi er einskonar prótótýpa af þessum búðum en við systur stefnum á að vera með sumarbúðir næsta sumar. Það verður ljósmyndari á staðnum til þess að taka myndir sem verða notaðar í auglýsingar fyrir okkur þegar við byrjum að selja inn í sumarbúðirnar. Við lofum að nota eingönu sætar myndir af ykkur! En þið eruð að fá þetta á kostnaðarverði, ca. 37 þús fyrir nóttina með ÖLLU í tvíbýli!

Category:

Description

Innifalið

  • Gisting í 3 nætur í uppábúnum tveggja manna herbergjum með sér baðherbergi og eldhúskrók í einni fallegustu náttúruperlu Íslands
  • Fullt fæði, morgunmatur, hádegisverður og kvölverður ásamt snarli og smá vínó
  • Frábær fyrirlestur
  • Morgunjóga föstudags og laugardagsmorgun
  • Veglegur goodie bag
  • Sýnikennsla
  • Afþreying, málum á MDF og gerum krosssaumsmyndir
  • Pottur og sauna
  • Notalegheit í setustofu með arineldi og stórkostlegu útsýni

    Sendið okkur email með hverjum þið eruð í herbergi og ef þið eruð vesenispésar með fæðuóþol eða sérþarfir varðandi matinn! 😉

    Hlökkum til að eyða helginni með ykkur!

Additional information

Verð

Ein í tvíbýli, Á mann í íbúð, Á mann í húsi