
Rannsóknir benda til þess að dvöl í náttúru geti dregið úr streitu, lækkað líkamleg streituviðbrögð og aukið tilfinningu fyrir ró og vellíðan. Kyrrð og fjarlægð frá áreiti dagsins — umferð, skjám, verkefnum og stöðugum truflunum — getur einnig auðveldað fólki að hægja á sér og komast í meiri núvitund.

Við völdum staðinn af kostgæfni því náttúran og kyrrðin eru órjúfanlegur hluti af upplifuninni. Fallegt umhverfi hjálpar okkur að hægja á, anda djúpt og njóta.

